Hafa samband: 690-3569 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

lógó

Kynfræðiskólinn - þjálfun fyrir fagfólk og leiðbeinendur

Kynstur ráðgjafastofa tekur að sér kynfræðikennslu og þjálfun fyrir fagfólk í heilbrigðis-og uppeldisstéttum og skyldum störfum svo sem forvarnarfulltrúa eða leiðbeinendur í félagsmiðstöðvum og unglingastarfi.

Margt fagfólk vill efla kunnáttu sína og færni í málefnum sem varða kynverund fólks. Ófullnægjandi kennsla í kynfræði (sexology) í grunn-og framhaldsnámi er ein ástæða óöryggis í að sinna fræðslu og ráðgjöf í þeim efnum.

Dæmi um námskeið/þjálfun:

Storkahreiðrið -heilbrigður kynferðisþroski barna.

Kynhegðun og ástir ungmenna.

Að ræða við skjólstæðinga um náin sambönd og kynlíf.

Endurmat viðhorfa til kynlífs ("Sexual attitude reassessment -S.A.R.)

Kynlíf og heilsa - námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

Geðlæknisfræði og sexólógía.

Dæmi um fyrirlestra:

Kjarkur eða kjaftstopp -að ræða um kynlíf við sjúklinga.

Eintóm eða tómleg ást? Kynheilsa, lífsgæði og hlutverk heilbrigðisstétta.

Bætir, hressir, kætir? Um áhrif ástar og kynlífs á heilsufar.

"Áður en við förum lengra, elskar þú mig?" Unglingaástir - þýðing fyrir kynfræðslu og forvarnir.

Réttindi kynverundar - hvað er langt í land?

Ungt fólk, kynhegðun og forvarnir.

Kynhegðun Íslendinga.

Ný sýn á kynlífsvanda kvenna.

Kynlífsvandi og meðferðarúrræði.

Áhrif lyfja á kynlíf.

Áhrif krabbameinsmeðferðar á náin sambönd, kynlíf og frjósemi.

Kynlíf og náin sambönd eftir greiningu brjóstakrabbameins.

Stóma. CCU og kynlíf.

MS og kynlíf.

Fjölbreytt kennslumarkmið i kynfræðikennslu - frá hinu persónulega til hins pólitíska.

Tengja við Facebook

Facebook