Hafa samband: 690-3569 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

lógó

Fyrir utan þjálfun fagfólks og leiðbeinenda býður Kynstur almenningi, skólum, starfsmannafélögum, félagasamtökum og klúbbum að velja úr fjölda fyrirlestra sem tengjast kynfræðslu, forvörnum, nánum samskiptum -  í stuttu máli um allt sem viðkemur kynverund mannsins

Einnig er hægt að panta sérsniðin námskeið eða fyrirlestra.

Dæmi um námskeið sem eru í boði (neðar á síðunni er listi yfir fyrirlestra sem eru í boði):

Áskoranir, ástir og kynlíf.
smilecoupleFræðandi örnámskeið (2 kennslustundir með umræðum) um áhrif sjúkdóma á kynlíf  og náin sambönd og leiðir til úrbóta. Námskeiðið er miðað við þarfir fólks sem glímir við sjúkdóma og/eða fötlun.

Hvaða þýðingu hefur kynlíf og náin sambönd í hugum fólks? Hvernig breytist kynlífsupplifun vegna heilsubrests? Hver eru bein og óbein áhrif sjúkdóma og fötlunar á kynlíf? Hvað er hægt að gera? Skiptir persónulegur þroski í áskorun vegna kynlífsvanda? Hvað er að vera “kynferðislega fullorðin(n)?”Hvað er einstakt kynlíf og “kynlífsstíll”? Hverjar eru gjafir náins sambands? Í fyrstu kennslustund flytur Jóna fyrirlesturinn Áskoranir, ástir og kynlíf. Í öðrum tímanum verður stutt verkefni og hópumræður.

Lágmarksfjöldi þátttakenda eru tíu manns. Nánari upplýsingar gefur Jóna: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 690-3569.

Umsögn: ...Hvetjandi fræðsla sem minnir á að kynlíf þarf að vernda og örva á hvaða skeiði lífsins sem við erum og hvernig svo sem heilsunni er háttað. Jóna Ingibjörg bendir á að alltaf er hægt að finna leiðir og lausnir. Í mati þáttakenda á fræðslu J.I. fékk hún það besta í öllu mati.

Sigríður Anna Einarsdóttir
Félagsráðgjafi , fjölskyldu og hjónaráðgjafi.


loveteensKynhegðun og ástir ungmenna. Þetta námskeið er ætlað fagfólki og starfsfólki sem starfar að málefnum ungmenna á grunn-og framhaldsskólaaldri og nýtist meðal annars við skipulagningu kynfræðslu og forvarnastarfs.

Efnisþættir eru meðal annars: rannsóknir á kynhegðun ungmenna, félagsmótun og ólík viðhorf til kynverundar ungmenna, orðræða í samfélaginu um kynlíf og ástir ungs fólks, siðferðileg álitamál, samspil áfengis-og vímuefna og kynhegðunar, eðlilegt kynlíf, “ástar-og skemmtihandritin” í kynlífi og þýðing þekkingar á kynhegðun ungmenna fyrir fræðslu og forvarnastarf.

Lágmarksfjöldi þátttakenda eru tíu manns. Nánari upplýsingar gefur Jóna: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 690-3569.

Umsögn þáttakenda; starfsfólks félagsmiðstöðva ÍTR í nóv.2008, af námskeiði um kynverund unglinga:

-    Góðar áherslur, vel skipulagt og skemmtilega uppbyggt. Verkefnið frábært og góðar umræður.
-    Mikil umræða – opið. Góður leiðbeinandi.
-    Góð umræða og reynt að fara yfir það sem tengdist þessum aldurshóp.
-    Áherslunar, þægileg stemmning, góð kennsla, situr margt eftir.
-    Umræðan sem skapaðist
-    Frábært að fá opnar umræður um kynlíf unglinga. Allar staðreyndirnar sem við fengum. Og talandi um gildin og siðferðið.
-    Leiðbeinandi skemmtilegur og vel framsett námskeið.
-    Góð og öðruvísi fræðsla, ekki verið að tala um kynfræðslu, þ.e.a.s. kynsjúkdóma og svoleiðis.
-    Þörf umræða! Veist greinilega alveg hvað þú ert að tala um.
-    Fallegt og gott að tala um kynlíf sem heilbrigt og eðlilegt, frekar en út frá tepruskap, dómum um kynlíf ss. “fjöldi rekkjunauta”.
-    Mjög gott námskeið hefði mátt vera miklu lengra.
-    Mér finnst mikilvægt að ræða þessi mál. Er ánægð með umræðurnar. Námskeiðið hjálpar mér að fræða unglinga mína, þau leita mikið til mín til þess að ræða kynlíf og mér finnst ég hafa náð að læra mikið á stuttum tíma. Gott að fá uppl. blöð heim.

 

hendur

Storkahreiðrið - heilbrigður kynferðisþroski barna. Námskeið ætlað fagfólki í uppeldis-og heilbrigðisstéttum. Aukin umræða og þekking á afleiðingum kynferðislegrar misnotkunar gagnvart börnum kallar jafnframt á trausta vitneskju um eðlilega kynhegðun barna. Efnisþættir eru meðal annars: kenningar og hugtök, rannsóknir, tengsl góðs atlætis við tilfinningalæsi, þróun sjálfsmyndar og líkamsvitundar, eðlileg kynhegðun meðal barna, hvenær ástæða er til að hafa áhyggjur af kynhegðun barna og foreldrar og kynferðisuppeldi.

Námskeiðið er 4 klukkustundir. Lágmarksfjöldi þátttakenda eru tíu manns. Nánari upplýsingar gefur Jóna: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 690-3569.

 

kossNámskeiðið Elskendur.

Á námskeiðinu mun Jóna miðla af reynslu sinni við kynlífsráðgjöf þar sem hún þekkir vel algengustu áhyggjuefni, sér í lagi hjá pörum sem hafa reynslu af lengri samböndum. Á námskeiðinu verður fjallað um gott eða einstakt kynlíf, kynlöngun, erótík og hvernig hægt er að viðhalda neistanum í lengri samböndum.

Bæði einstaklingar og pör af báðum kynjum eru velkomin á námskeiðið Elskendur.

Námskeiðið er þriggja tíma langt. Lágmarksfjöldi þáttakenda eru tíu manns en hjónaklúbbar og aðrir hópar geta pantað námskeiðið. Nánari upplýsingar gefur Jóna: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 690-3569.

 

brjostahald

Námskeiðið Kynverund kvenna. Á þessu námskeiði er áhersla lögð á reynsluheim kvenna hvað snertir kynlíf, ást og náin sambönd. Meðal annars verður fjallað um ástrík og gefandi sambönd og ástríður, ólíkar gerðir kynlöngunar, kynsvörun kvenna og ný sýn á kynlífsvandamál kvenna.

Námskeiðið er hálfs dags námskeið eða heilt kvöld. Lágmarksfjöldi þátttakenda eru tíu konur en saumaklúbbar, félagasamtök og ýmsir kvennahópar geta pantað námskeiðið. Nánari upplýsingar gefur Jóna: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða 690-3569.

Umsagnir fyrri þátttakenda:
"Lifandi og sérstaklega fjölbreytt námskeið, mér leiddist aldrei, fínt að þú skulir nota margar ólíkar aðferðir við að brjóta upp kennsluna, í heildina frábært námskeið- takk kærlega!"
"Svaka fínt námskeið, passlega langt og það myndaðist góður grunnur til að ræða málin opinskátt vegna lítils hóps"
"Mikil, ný þekking og vel undirbúið námskeið!"
"Gott að fá upplýsingar sem maður getur svo sjálfur skoðaða á netinu"
"Frábært að heyra skilgreiningarnar t.d. um kynlífsáhuga og kynlífslöngun- að þetta sé ekki eitt og hið sama"
"Ég vil engu breyta um þetta námskeið, hafðu það áfram eins og það er, takk fyrir frábært námskeið!"
"Góður, léttur andi en samt alvara, fékk mörg svör, styrktist í því að ég er líklega í lagi og fékk staðfestingu á að ég er að standa með sjálfri mér."
"Ég er mjög ánægð með námskeiðið en það mætti vera lengra!, gott að fá þessi "hand-out" og upplýsingarnar um meira efni, fræðslan um nýja kynlífssýn var mjög mikilvæg fyrir mig"
"Góð stemning í hópnum"
"Frábært að læra um nýju sýnina á kynlífi og allann fjölbreytileikann og að allt sé ekki bara bilað og þurfi að laga, heldur að við séum ólík og eðlileg."



 

 

Tengja við Facebook

Facebook