Fyrir hverja er kynlífsráðgjöf?

Kynlífsráðgjöf er bæði fyrir einstaklinga og pör. Ef kynlífsvandinn eða áhyggjurnar snerta báða einstaklinga í parsambandi er æskilegast að báðir komi saman í viðtalstímann. Þegar annar aðili í sambandi telur sig "eiga meira í vandanum" er það merki um að báðir ættu að koma í ráðgjöfina því vandinn er tilkomin vegna samspils við hinn sem telur sig eiga "minna í vandanum".

Kynlífsráðgjöf skilar því betri árangri ef báðir einstaklingar komi í ráðgjöfina frá upphafi.

tantra

Hvað er kynlífsráðgjöf?

Kynlífsráðgjöf (sex counseling) er bæði sérhæfð samtalsmeðferð og sambandsráðgjöf þar sem kynlífsmál af einhverjum toga eru "aðgöngumiðinn". Það þýðir að kynlífsvandinn er í forgrunni. Það er mikilvægt að undirstrika að litið er á sambandið í heild sinni í viðtölum.

Kynlífsráðgjöf er stundum sögð vera sálfræðileg nálgun sem aðstoðar einstaklinga og pör við að breyta kynlífsvenjum eða vinna úr kynferðislegum vanda. Slík ráðgjöf krefst þess að fólk sé reiðubúið að líta í eigin barm og hentar þess vegna síður þeim sem eru að leita að skyndilausnum.

Hvernig panta ég tíma og hvað kemst ég fljótt að?

Þú getur pantað viðtalstíma í s. 690-3569 (talhólf). Þá gefur þú upp nafn og síma og ég hringi fljótlega. Einnig er hægt að senda mér viðtalsbeiðnir í tölvupósti: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Oftast þarf ekki að bíða í nema 1-2 vikur eftir viðtali.

Reglur um afboðun

Frátekið viðtal sem fellur niður án afboðunar greiðist að fullu. Frátekið viðtal sem er afboðað sama dag og viðtal er fyrirhugað greiðist að hálfu.

Hvað er tíminn langur?

Gert er ráð fyrir að hvert viðtal sé um 45. mín. langt, sama hvort einstaklingur eða par er í viðtali. Flestir panta einn tíma í senn en gefinn er kostur á að panta tvo og allt upp í þrjá tíma í einu.

Hvað kostar tíminn?

Gjald fyrir hvern viðtalstíma er 8.900 krónur sem enn er lægra en tíðkast víða erlendis þar sem sambærileg kynlífsráðgjöf er í boði.

Kynlífsráðgjöf og meðferð felst ekki einungis í sjálfum viðtölunum heldur er um fleira að ræða. Má þar nefna úrvinnslu mælitækja (spurningalista), skráningu heilsufarssögu, ritun tilvísana til sérfræðinga, endurmenntun, leit að viðeigandi fræðsluefni og tölvu- eða símasamskipti við skjólstæðinga og sérfræðinga.

Sum stéttarfélög, t.d. Verslunarmannafélag Reykjavíkur (VR) og Bandalag Háskólamanna (BHM),  niðurgreiða viðtöl og hjá félagsþjónustu er stundum hægt að sækja um styrk vegna ákveðins fjölda viðtala. Tryggingastofnun tekur ekki þátt í að greiða niður kynlífsráðgjöf enn sem komið er eða aðra sérhæfða samtalsmeðferð hjá fagfólki, nema hjá geðlæknum.

Jóna Ingibjörg er eini viðurkenndi sérfræðingurinn hérlendis í klinískri kynfræði (kynlífsráðgjöf/meðferð).

Hvorki starfsheitið kynfræðingur eða kynlífsráðgjafi eru lögvernduð og því getur hver sem er kallað sig kynlífsráðgjafa hér á landi án þess að hafa lokið námi í samtalsmeðferð eða námi í klinískri kynfræði.

Jóna Ingibjörg er eina fagmanneskjan hérlendis sem hefur hlotið sérfræðiviðurkenningu í klinískri kynfræði (specialist in clinical sexology) hjá Nordic Association for Clinical Sexology (NACS). Hún hefur því leyfi til að kalla sig sérfræðing í klinískri kynfræði og stunda bæði kynlífsráðjöf og meðferð samkvæmt skilyrðum NACS.

Kynfræðifélag Íslands (Kynís) sér um að veita viðurkenningu til handa íslensks fagfólks í kynfræði hvort sem um er að ræða á sviði kynfræðslu (sexuality education), klinískrar kynfræði (kynlífsráðgjöf og meðferð - sex counseling and therapy) eða rannsókna (sex research).

Hvers vegna kemur fólk í kynlífsráðgjöf?


liggurÁhyggjuefni fólks í kynlífi eru afar fjölbreytt en allir eiga það sammerkt að óska eftir faglegri hjálp við að ráða fram úr hlutunum. Sumir eru búnir að vera að safna kjarki lengi með að panta viðtal, jafnvel árum saman. Það er tiltölulega algengt að einstaklingar sem eru óöryggir í nánum samskiptum leiti til mín sem vilja styrkja sig sem kynveru til dæmis fólk sem er einhleypt og vill gjarnan kynnast öðrum en treystir sér ekki til þess af ýmsum ástæðum.

Dæmi um vandamál sem fólk leitar með eru t.d. ýmis konar sambandsörðugleikar sem valda togstreitu svo sem misræmi í kynlöngun og fjöldi þeirra sem leita sér aðstoðar vegna þessa fer æ vaxandi. Einnig má nefna hefðbundin kynlífsvanda á borð við stinningarerfiðleika, sáðlátstruflanir, sársauka við samfarir eða fullnægingarskort.

Þeir sem glíma við kynlífsáráttu (sexual compulsion) leita sjaldnast aðstoðar sjálfir en ef kynhegðunin er farinn að hafa eyðileggjandi áhrif á parasamband eða hjónaband viðkomandi óskar maki stundum eftir að koma í viðtal.

Stundum leitar fólk í kynlífsráðgjöf sem hefur orðið fyrir einhverju áfalli og óskar eftir að vinna úr því s.s. nýlega upplifað framhjáhald maka, er nýskilið eða hefur orðið fyrir kynferðislegri misnotkun í uppvexti.

Stundum leita einstaklingar sem eru óöruggir með kynhegðun sína, kynvitund eða kynhneigð.

Hluti skjólstæðinga kemur síðan í viðtal einfaldlega til að fræðast um allt mögulegt sem viðkemur kynlífi. Þar má nefna hver áhrif sjúkdóma, slysa eða lyfja eru á líkamsstarfssemina, hvaða hjálpartæki gagnast best eða hvar sé best að leita að áreiðanlegum upplýsingum.

Eru einhver vandamál sem ekki er hægt að leita með í kynlífsráðgjöf?

Reynt er að meta það hverju sinni en ég legg á það áherslu að starfa náið með öðru fagfólki, eftir því sem þörf krefur og stundum vísa ég málum annað s.s. til þvagfærasérfræðinga, kvensjúkdómalækna eða heimilislækna. Einnig er ég í ágætu samstarfi við kollega mína á Norðurlöndunum og hef m.a. vísað málum til sérfræðinga þar.

Er hægt að vísa málum til Jónu Ingibjargar frá öðru heilbrigðisstarfsfólki?

Já, ég tek við beiðnum frá öðru fagfólki, bæði úr heilbrigðis-og félagsþjónustunni. Konsultbeiðnum frá endurhæfingarsviði farið fjölgandi t.d. vegna breytinga á kynlífi í kjölfar slysa eða sjúkdóma sem valda óöryggi eða álagi í parsambandi. Ég legg áherslu á að vinna með öðru heilbrigðisstarfsfólki, eftir því sem þörf krefur, t.d. á ég gott samstarf við kvensjúkdómalækna, þvagfærasérfræðinga og heimilislækna sem vísa til mín bæði einstaklingum og pörum.

Hafa samband: 690-3569 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

lógó

 

Tengja við Facebook

Facebook