Um Kynstur
KYNSTUR RÁÐGJAFASTOFA er þjónustufyrirtæki á sviði kynheilbrigði sem vill stuðla að heilbrigðri kynverund hjá fólki á öllum aldri. Kynstur stefnir að því markmiði með þríþættri starfsemi:
1. Kynlífsráðgjöf fyrir pör og einstaklinga. Kynlífsráðgjöf er sérhæfð samtalsmeðferð/sambandsráðgjöf.
2. Almenningsfræðsla: fyrirlestrar og námskeið um kynverund mannsins (human sexuality) fyrir einstaklinga, pör, félagasamtök, klúbba og starfsmannafélög.
3. Kynfræðiskólinn: þjálfun fagfólks í heilbrigðis-og uppeldisstéttum og leiðbeinenda
MERKIÐ
Merki, eða lógó, Kynstur sýnir hjarta og sæðisfrumu. Hugmyndina að merkinu fékk ég fyrir mörgum árum og Helgi Sigurðsson teiknari útfærði merkið fyrir mig.

Kynverund mannsins er farvegur fyrir nýtt líf (sæðið) og myndun og viðhald nýrra parsambanda (hjartað - kærleikurinn). Lógó Kynsturs sýnir því bæði tilfinningalegar og líkamlegar hliðar kynverundar.
Merkið minnir á yin og yang úr kínverskri heimspeki. Yin og Yang tilvísunin undirstrikar að kynverund mannsins er síkvikt og breytilegt afl, allt frá fæðingu til dauða. Kynverund fólks ræðst af samspili ýmis konar hvort sem það eru náin samskipti para af sama eða gagnstæðu kyni, samband hugar og líkama eða einstaklinga og samfélags. Hver hluti er í stöðugum tengslum við hinn og myndar heild.
HVAÐ ÞÝÐIR ORÐIÐ KYNSTUR?Kynstur þýðir auðæfi, býsn, gnótt, undur, fjöldi.
Nafnið Kynstur hentar vel sem heiti á þjónustu sem hefur það að markmiði að styrkja auðæfin fyrir fólk og lífið sjálft; það er að segja kynverund mannsins. Kynstur er nafnorð, hvorugkyn og fleirtöluorð og beygist á eftirfarandi hátt:
Fleirtala, án greinis
- kynstur
- kynstur
- kynstrum
- kynstra
Fleirtala, með greini
- kynstrin
- kynstrin
- kynstrunum
- kynstranna
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
