Jóna Ingibjörg
Ég hef margra ára reynslu af kennslu, ráðgjöf og rannsóknum í kynfræðum. Til dæmis var ég aðalskipuleggjandi og umsjónarmaður fyrstu könnunar á kynhegðun sem gerð var meðal íslensku þjóðarinnar árið 1992.
Eftir nám í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands lauk ég árið 1988 meistaraprófi í menntunarfræðum á sviði kynfræðslu (sexuality education). Human sexuality education námið stundaði ég í Graduate School of Education við University of Pennsylvania.
Árið 2001 lauk ég viðbótarnámi í samtalsmeðferð (psykoterapi) frá Grábræðrastofnuninni í Danmörku og árið 2006 hlaut, fyrst Íslendinga, sérfræðiviðurkenningu í klinískri kynfræði frá Samtökum norrænna kynfræðifélaga (Nordic Association for Clinical Sexology; NACS).
Árið 2008 stofnaði ég fyrirtækið Kynstur ráðgjafastofa og starfa sjálfstætt við kynlífsráðgjöf, almenningsfræðslu og kennslu á sviði kynfræða (kynfræðiskólinn).
Nýtt nám í kynfræði á háskólastigi hófst árið 2010. Ég var hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi.
Formaður Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir (FKB) 2010-
Formaður Kynfræðifélags Íslands 1993-1996 og 2004-2008. Meðstjórnandi 2008-2010.
Hef bloggað síðan 2006, núna á Eyjunni.
Ég er höfundur bókarinnar Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík, fræðiriti um mannlega kynverund.
Ég er gift Þóri Jóhannssyni, tónlistarmanni, og á tvö börn.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
