Verðskrá
Kynlífsráðgjöf: 8.900 hver viðtalstími.
Símaráðgjöf: 3.900 hver hálftími. Símtöl þarf að panta fyrirfram: 690-3569 eða
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þegar búið er að ákveða dagsetningu og tímasetja hvenær þú hringir er gengið frá greiðslu. Bankaupplýsingar eru neðst á síðunni.
Svör við skriflegum fyrirspurnum: 3.900
Ef þú vilt senda mér skriflega fyrirspurn og óskar eftir svari frá mér vinsamlegast lestu þá eftirfarandi leiðbeiningar:
Fyrst þarftu að lýsa vandanum eins vel fyrir mér og þú getur. Allar upplýsingar sem málið varða eru mikilvægar. Ef þú svarar a.m.k. eftirfarandi spurningum og lætur þær upplýsingar fylgja í fyrirspurninni eru meiri líkur á að þú fáir ítarlegt svar frá mér:
A. Hver er vandinn? Hvert er áhyggjuefnið? Hvernig og hvenær byrjaði vandinn? Hvaða áhrif hefur vandinn á þína/ykkar líðan, samband, annað?
- Hvað hafið þið sjálf gert til að leysa málið? Hvað hefur virkað og hvað ekki?
- Hvað er mikilvægast í sambandi við hverju þið viljið breyta? Hvað viljið þið sjá gerast?
B. Fyrirspurnin sendist síðan til mín á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
C. Því næst þarf að ganga frá greiðslu, kr. 3.900, fyrir svarið sem þú færð sent frá mér. Bankaupplýsingar eru neðst á síðunni.
Þegar skrifleg fyrirspurn og greiðsla hefur borist mun ég svara ykkur eftir bestu getu og svarið ætti að berast þér/ykkur innan tveggja virkra daga.
Fyrirlestur (á íslensku): samkomulag. Verðlagning fyrirlestra miðar við að verið sé að óska eftir vinnuframlagi fagmanneskju með mikla reynslu að baki í kynfræðum og með leyfisveitingu að auki.
Námskeið: oftast er miðað við 10-20 þúsund króna námskeiðsgjald á hvern þáttakanda. Endanlegt námskeiðsgjald fer þó eftir lengd og innihaldi námskeiðs og fjölda þáttakenda.
Kynning á bók: taxti Hagþenkis, félag höfunda fræðirita og kennslugagna og taxti Rithöfundasambands Íslands eru hafðir til viðmiðunar.
Bankaupplýsingar Kynstur:
Reikningsnúmer 0301-26-080470
Kt. 630108-0470
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
