Great Global Kiss-In
12. maí 2010
Blásið er til Great Global Kiss-In atburðar í Reykjavík mánudaginn 17. maí 2010 kl. 16:00 - 17:00 á Austurvelli, Reykjavík.
17. maí er alþjóðlegur dagur gegn homma-og transfóbíu, þ.e. fordómum og hræðslu gagnvart samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki. Af því tilefni ætlar hópur fólks að hittast á Austurvelli og kyssast gegn fordómum.
Enn þann dag í dag veigra pör úr röðum hinsegin fólk sér við að kyssast á almannafæri. Eitthvað sem streit pörum þykir sjálfssagt að gera og velta ekki mikið fyrir sér.
Fræðsla fyrir lækna á Reykjalundi29. apríl 2010 Í gær flutti ég fyrirlestur fyrir lækna á Reykjalundi sem bar yfirskriftina Kynlífsvandi og meðferð. Fyrirlesturinn fjallaði um efni, að beiðni þeirra sjálfra um þrennt: Hvað er eðlilegt kynlíf? Hver eru helstu kynlífsvandamál og úrlausnir? Efnið er ansi viðamikið og eitthvað sem kennt er á margra vikna námskeiðum meðal fagfólks en ég reyndi að gera því skil eftir minni bestu getu. Í lokin spunnust ágætar umræður og eru læknar á Reykjalundi vel meðvitaðir um að kynlíf er einn þáttur lífsgæða og að langvinnir sjúkdómar geta raskað getu fólks í þeim efnum. Jafnframt töldu þeir að þessum þætti væri þó ekki sinnt með nægilega markvissum hætti t.d. í sjúklingafræðslu og ráðgjöf. Stofuviðtöl26. apríl 2010 Á vorin hleypur venjulega kippur í bókanir í kynlífsráðgjöf og stundum komast færri að en vilja. Ég kann enga skýringu á hvers vegna oft er vinsælla að koma í ráðgjöf á vorin en aðra tíma ársins. Kannski hefur það eitthvað með sumarið að gera og væntingar fólks á þeim árstíma. En af þessu tilefni vil ég upplýsa að Kynstur ráðgjafastofa verður lokuð frá 1. júlí -15. ágúst n.k. svo best er að panta viðtöl fyrir þann tíma. Stofuviðtöl hefjast svo að nýju upp úr miðjum ágúst. Er rangt að nota líffæri í kynferðislegum tilgangi?25. apríl 2010 Er rangt að nota líffæri í kynferðislegum tilgangi? Oft vefst fyrir fólki að skilgreina eðlilega kynhegðun. Í bókinni minni Kynlíf- heilbrigði ást og erótík fer ég nokkuð ítarlega í þá sálma í fimmta kafla um margvíslega kynhegðun. Margvísleg viðmið eru til um hvað telst eðileg kynhegðun. Til dæmis telja sumir að einungis kynhegðun sem hefur æxlun í för með sér sé "eðlilegt kynlíf". Nátengt æxlunarsjónarmiðinu er sú hugmynd að ef líffæri hafa ákveðinn tilgang, sé rangt að nota þau í öðrum tilgangi. Slíkt sjónarmið mætti greina hjá manneskju sem segði að fyrst endaþarmurinn gegni fyrst og fremst því hlutverki að láta frá sér melta fæðu þá sé ónáttúrulegt eða rangt að nota hann í kynferðislegum tilgangi. Með sömu rökum mætti fordæma eða banna kossa af því að munnholið er fyrst og fremst notað til að neyta fæðu og draga súrefni ofan í lungun. Í reynd er lítil stoð í þessum sjónarmiðum. Vefir í endaþarmi eru fósturfræðilega af sama meiði og kynfærin. Það liggur því í augum uppi að erting í endaþarm getur virkað kynferðislega örvandi. Hvort sú er raunin fer auðvitað síðan eftir mörgu, ekki síst þekkingu fólks og viðhorfum. |
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Síða 3 af 29
