Ein hjúskaparlög fyrir alla
26. júní 2010 Á morgunn, 27. júní, taka gildi ný hjúskaparlög sem kveða á um ein hjúskaparlög fyrir alla. Tveir einstaklingar (óháð kynferði) mega stofna til hjúskapar. Þetta er sannkallaður gleðidagur. Samkynhneigðir og ástvinir þeirra fagna og kirkjunnar fólk sem hefur hjartað á réttum stað.
Það kætir mig einnig að biskupinn hafi beðist fyrirgefningar á þeim orðum sínum að ef hjónaband yrði hjónabandið ekki lengur skilgreint sem samband karls og konu, yrði því kastað á sorphauginn.

Þverfræðilegt háskólanám í kynfræði hefst í haust29. maí 2010 Nýtt þverfræðilegt nám í kynfræði (sexology) á meistarastigi hefst haustið 2011. Árið 2004 átti ég, sem þáverandi formaður Kynfræðifélags Íslands, frumkvæði að því hefja undirbúning að kynfræðinámi á háskólastigi. Stjórn Kynfræðifélagsins skipaði námsnefnd árið 2005 sem stefndi að inntöku fyrstu nemanna haustið 2009 við Háskóla Íslands. Þau áform komust í uppnám á haustdögum 2008 vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu, og óvíst var hve lengi þurfti að bíða þess að heildstætt kynfræðinám yrði að veruleika á Íslandi. Nú hefur ræst úr og kynfræðinámið hefst næsta haust. Námið í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands. Kennd verða þrjú námskeið í kynfræðináminu. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.
Hreinasta tungumálið er líkamsmálið. |
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Síða 2 af 29

