Á stöðugu flandri, bara fjör
26. nóvember 2009
Bókin mín er loksins komin út og ég byrjuð að fara út og suður að kynna krógann. Á eilífu flandri. Mér finnst það bara gaman.
Var í Eyjum nýverið og í Gerðubergi síðustu helgi, ásamt öðrum kvenrithöfundum.
Í gær ræddi ég við Lindu Blöndal á Rás 2, hún var góður viðmælandi. Það skiptir máli þegar umræðuefnið er kynlíf.
Sem betur fer gerist það sjaldnar en áður þegar ég fer í viðtöl í fjölmiðla að spyrjandinn fari í kleinu. Það gerðist nokkuð oft hér áður. Ástæðan er einfaldlega sú að sumir eru ekki vanir að tala um þessi mál á eðlilegum nótum.
Í morgunn var ég í spjalli við stuðboltana í Zúúber þættinum. Sigga Lund og Svali héldu sjó - greinilegt að þau eru vön að tala um kynlíf. Gassi var í sínu elementi.
Svo á morgunn er upptaka á einni sjónvarpsstöðinni og fleiri viðtöl í farvatninu í næstu viku í öðrum fjölmiðlum.
Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík25. nóvember 2009
Í dag kemur bók mín Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík í verslanir. Þá er stórum áfanga náð! Það sem ég hlakka einna mest til er að heyra viðbrögð og undirtektir lesenda. Þetta er nefnileg bók sem ég er afskaplega stolt af. Í bókinni er að finna bæði mikinn fróðleik og síðan er hún afar gagnleg þar sem sú þekking og þær hugmyndir sem þar koma fram nýtast fólki á öllum aldri, bæði í einkalífi og starfi. Hér gefur að líta uppröðun kafla eins og þeir koma fyrir í bókinni: EFNI FORMÁLI ................................................................... 7
Málstofa í kynfræði fyrir læknanema24. nóvember 2009 Undanfarin ár hef ég kennt málstofu í kynfræði fyrir læknanema í geð-og taugalæknisfræði, vor og haust. Í hvert sinn bið ég nemana um umsögn um kennsluna. Ég hef notað umsagnirnar til að betrumbæta kennsluna. Nú get ég ekki bætt um betur. Til að gera það þarf ég lengri tíma en þrjár kennslustundir.
Bókin er á leiðinni19. nóvember 2009 Bókin mín Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík er á leiðinni úr prentsmiðju. Svo virðist sem fleiri bókaútgefendur hafi látið prenta bækur hérlendis í ár en undanfarin ár. Þetta þýðir að það er biðröð eftir prentun bóka. En í gær fékk ég fyrsta eintakið í hendur. Mér líður eins og sængurkonu. Nú sést í kollinn á barninu en þegar bókin verður komin úr prentsmiðju og farin í dreifingu í verslanir verður fæðingin yfirstaðin. Bara fylgjan eftir. Sem gæti verið eftirfylgnin, það er að segja fylgja bókinni eftir og kynna hingað og þangað fyrir áhugsama. Ég er afskaplega þakklát þeim sem styrktu mig við skrifin. Má þar nefna Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir og Hagþenki, félag höfunda fræðirita og kennslugagna (hér má sjá frétt um þá styrkveitingu). Styrkurinn sem ég hlaut frá Launasjóði fræðirithöfunda var afskaplega kærkomin því þá gat ég einbeitt mér að skrifunum í hálft ár. Það er nefnilega seinlegt verk að skrifa bók í hjáverkum.
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Síða 10 af 29

Það sem nemarnir biðja um í hvert sinn er meiri tími svo hægt sé að æfa sig betur í að taka kynlífssögu, fá meiri umfjöllun um kynlífsvandamál og kynnast betur úrræðum sem í boði eru. Sumstaðar erlendis verða læknanemar að taka a.m.k. eins vikna námskeið í kynfræði, hér er boðið upp á 3 kennslustundir.