Ástin er allt sem þú þarft
14. desember 2009
Ástin er allt sem þú þarft. Það sérðu hér í þessu skemmtilega myndskeiði. Sjaldgæf en fögur sjón. Á einum stað glittir í Fjallabræður.
Sólskinsviðurkenning Kynstur ráðgjafastofu10. desember 2009 Tilnefningar óskast vegna Sólskinsviðurkenningu Kynstur ráðgjafastofu!
Þessi viðurkenning er veitt einstaklingi, félagasamtökum eða stofnunum sem með einum eða öðrum hætti hafa sýnt frumkvæði, styrkleika og gleði og undirstrikað með eftirminnilegum hætti jákvæðar hliðar mannlegrar kynverundar. Hliðar kynverundar sem tengjast sjálfsviðurkenningu, heilindum og ástríðum. Tilkynnt er hverjir eru hverjir hljóta Sólskinsviðurkenninguna daginn eftir vetrarsólstöður þann 22. desember ár hvert þegar byrjar sólin að hækka á lofti á ný. Þegar eru komnar tvær tilnefningar; Trans Ísland samtökin sem hafa sýnt bæði kjark og frumkvæði í að opna á réttindabaráttu transfólks á Íslandi og hópur kvenna í Kvenfélagi Biskupstungna sem ákváðu að sitja léttklæddar fyrir á myndum á dagatali og skora á hólm staðlaðar hugmyndir um kynverund kvenna, kvenfélagsandann og kvenfélagskonur. Tilnefningar, ásamt rökstuðningi, óskast sendar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 20. desember 2009. Safaríkt kjöt og Kynlíf5. desember 2009. Bókabúð Máls og menningar ætlar að snúa blaðinu við. Þegar keypt er eintak af bókinni minni Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík fylgir hamborgarahryggur frá Gallerí Kjöt með í kaupbæti.
Frétti annars að Bónus verslanirnar ætli ekki að hafa bókina mína á boðstólum, bókin þykir of fræðandi. Það má líta á þá skoðun jákvæðum augum! |
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Síða 9 af 29

Árlega veitir Kynstur ráðgjafastofa viðurkenningu sem ber heitið Sólskinsviðurkenningin.
Líst ljómandi vel á þetta. Nokkuð góð búbót fyrir einhverja. Nú er bara að drífa sig áður en kjötið hverfur!