Gleðileg jól

24. desember 2009

Kynstur ráðgjafastofa óskar öllum viðskiptavinum nær og fjær gleðilegra jóla. Megi nýtt ár færa ykkur kærleika og frið.

kind

Tengja við Facebook

Facebook   
 

Kvenfélag fær Sólskinsviðurkenningu Kynstur 2009

22. desember 2009

Kvenfélag Biskupstungna hlýtur Sólskinsviðurkenningu Kynstur í ár. Félagið hlýtur viðurkenninguna fyrir gerð dagatals þar sem þær sitja fyrir fáklæddar.

kven1

 

Árlega veitir Kynstur ráðgjafastofa viðurkenningu sem ber heitið Sólskinsviðurkenningin.

Þessi viðurkenning er veitt einstaklingi, félagasamtökum eða stofnunum sem með einum eða öðrum hætti hafa sýnt frumkvæði, styrkleika og gleði og undirstrikað með eftirminnilegum hætti jákvæðar hliðar mannlegrar kynverundar. Hliðar kynverundar sem tengjast sjálfsviðurkenningu, heilindum og ástríðum.

Tilkynnt er hverjir eru hverjir hljóta Sólskinsviðurkenninguna 22. desember, daginn eftir vetrarsólstöður, þegar sólin byrjar að hækka á lofti á ný.

Að þessu sinni bárust eftirfarandi þrjár tilnefningar; Trans Ísland samtökin sem hafa sýnt bæði kjark og frumkvæði í að opna á réttindabaráttu transfólks á Íslandi, karlakórinn Fjallabræður fyrir að leyfa testosteróni og ættjarðarást að flæða og hópur kvenna í Kvenfélagi Biskupstungna sem ákváðu að sitja léttklæddar fyrir á myndum á dagatali og skora á hólm staðlaðar hugmyndir um kynverund kvenna og kvenfélagskonur.

Konurnar í Kvenfélagi Biskupstungna eru vel að viðurkenningunni komnar. Þær eru sjálfstæðar, einlægar og geislandi af sjálfstrausti þótt líklega hafi gerð dagatalsins verið nokkur áskorun. Það er líka eitthvað hressandi við að heyra það viðhorf að það að vera í kvenfélagi snúist ekki bara um að vappa um á peysufötum. Það væri tímanna tákn ef Húsfreyjan, tímarit Kvenfélagasambands Íslands, segði frá þessu framtaki.

Þegar ég frétti af uppátæki kvennanna gladdist ég. Það er nefnilega svo mikilvægt að sýna í verki þau gildi sem við teljum okkur standa fyrir. Hversu oft heyrast ekki óánægjuraddir um hvað fyrirsætur eru óraunverulegar; oftast grindhoraðar og fótósjoppaðar? Þá er bara að gera eitthvað í því! Sýna hvernig konur eru í raun og veru. Konurnar sem kýldu á gerð dagatalsins gerðu einmitt það og sýna þar með heilindi. Þess vegna fá þær Sólskinsviðurkenningu Kynstur í ár.

Á sínum tíma var það draumur minn að ritstýra kynfræðsluriti. Ég kom með nafn að slíku riti og fékk það nafnið Bleikt & Blátt. Ég ritstýrði fyrstu þremur eintökunum en sagði svo upp störfum þar sem ég var ekki sátt við framkomu þáverandi útgefanda gagnvart starfsfólki. "Barnið" fór sína leið og endaði í "ræsinu" sem klámrit.

En þegar ég var ritstýra B & B ákvað ég að hafa ljósmyndaþátt í blaðinu. Ég auglýsti eftir fyrirsætum af öllum stærðum og gerðum en mér til nokkurra vonbrigða sóttu bara staðalímyndarkroppar um fyrirsætustörfin. Ég vissi sem var að venjulegt fólk myndast líka vel, ljósmyndarinn er aldrei hlutlaus og það er hægt að líta vel út án þess að fótósjoppa. Hins vegar var greinilegt að ekki voru margir sammála eða höfðu ekki sjálfstraust í þetta ljósmyndaverkefni fyrst venjulegt fólk sótti alls ekki um.

Konurnar á dagatalinu hafa þetta sjálfstraust. Dagatalsmyndirnar sýna sterkar, glaðar konur. Kynstur vill stuðla að kynferðislega heilbrigðu samfélagi. Kvenfélag Biskupstungna fær viðurkenninguna fyrir að leggja sitt af mörkum með því að beina kastljósinu að jákvæðum hliðum mannlegrar kynverundar.

 

 

Tengja við Facebook

Facebook   
 

Jólakort frá Kinsey Institute

19. desember Kinsey stofnunin í Bloomington í Indiana fylki í Bandaríkjunum er merkileg stofnun.

k

 

Tengja við Facebook

Facebook   
 

Umsagnir læknanema um kennslu í kynfræði

16. desember 2009 Í hvert sinn sem ég kenni kynfræði í geðlæknisfræðiáfanga læknanema á 5. ári veita þeir umsagnir um kennsluna. Hér eru umsagnir þeirra eftir málstofu í kynfræði í nóvember s.l. Málstofan í kynfræði er einungis þrjár kennslustundir.

Í hvert sinn sem ég kenni vilja nemendur fleiri kennslustundir og meiri kennslu um kynlífsvanda og úrræði. Á meðan bara þrjár kennslustundir eru til umráða er hæpið að hægt verði að mæta þeim óskum í framtíðinni nema kennslustundum í kynfræði verði fjölgað í læknanáminu.

Hvað var gott?

Nemandi 1.
-mjög áhugavert og þarft umræðuefni
-þörf á fræðslu fyrir læknanema
-skemmtilegt og skilvirkt form kennslu
-kennsla miðuð við hvað gæti gagnast hópnum
-algengt en lítið rætt vandamál (kynlífsvandi)

Nem.2
-þörf umræða! Eitthvað sem allir hafa áhuga á. Gott að minna mann á hvað þetta er mikilvægur partur af lífi fólks og þeirra lífsgæðum. Gott að láta okkur taka virkan þátt!

Nem.3
-gott að tala um þetta
-að hugsa um kynlíf sem hluta af lífsgæðum fólks sem það er að sjálfssögðu
-læra aðferðir til að spyrja um kynlífið

Nem.4
-hópvinnan var mjög skemmtileg ..og eins æfingin í upphafi tímans

Nem.5
-gott að læra að opna inn á að tala um kynlíf við sjúklinga
-átta sig á mismunandi kynlífsvanda
-gott að gera sér grein fyrir eigin viðhorfum gagnvart ýmsum málefnum
-gott að vita hvert hægt sé að leita ef fólk á í kynlífsvanda
-gott að gera sér grein fyrir því að er auðvelt að tala um kynlíf

Nem.6
-síðasti hlutinn var gagnlegastur, þ.e. umræðan í hringnum. Gaman að heyra álit annarra og víkka þannig sjóndeildarhringinn

Nem.7
-nýstárlegt, ég hef sjaldan tekið þátt í svona

Nem.8
-fannst þetta fínn tími! Held að punktar úr fyrirlestri nýtist vel í viðtalstækni.
-að sitja í hring og tala saman er æfing sem nýtist vel á fleiri stöðum en bara í sexólógíu og gert oft lítið af í læknanáminu

Nem.9
-fengum að tjá skoðanir okkar, mjög gagnlegt

Nem.10
-þörf fræðsla, mjög hagnýtt

Nem.11
-þetta var mjög fínt!

Nem.12
-mjög góð og nauðsynleg fræðsla

Nem.13
-fínn tími –gott til tilbreytingar að hafa ekki bara ppt.fyrirlestur

Nem.14
-interactive kennsla!
-gott skipulag
-ekki of mikið power point

Nem.15
-vel sett upp hvað varðar efnistök og form kennslunnar/umræða
-oft er það kvöð og hallærislegt þegar við eigum að gera/segja e-ð sjálf í kennslu en þetta var einstaklega vel heppnað

Hvað mætti gera betur? Hverju mætti breyta?

Nemandi 1
-lengri tími
-ræða betur mismunandi vanda

Nem.2
-vera með þessa fræðslu fyrr í náminu

Nem.3
-lengri tími í umræður
-fá þetta fyrr á önninni, helst í September

Nem.4
-hafa í upphafi námskeiðs
-fleiri power point glærur, setja t.d. dæmisögurnar á sér glærur
Takk fyrir

Nem.5
-hafa meiri umræðu þar sem fólk viðrar viðhorf sín

Nem.6
-mættir segja fleiri dæmisögur úr starfsreynslunni, algeng vandamál og úrlausnir.

Nem.7
-mætti í fyrstu 2 spurningunum láta hvert par segja 1 atriðið, annars eru flest búin e. fyrsta

Nem.8.(ekkert komment hér)

Nem.9
-tíminn hefði mátt vera lengri

Nem.10
-hefði verið til í meiri umræður í lokin og fleiri dæmisögur

Nem.11
-hefði verið skemmtilegt að heyra um fleiri “keis” og nálgun við úrlausnir, en læri það eflaust betur þegar ég fer í sexual medicine + les bókina þína ?!

Nem.12
-mætti vera fyrst á önninni svo fræðslan nýtist betur í viðtölum í geðkúrsinum

Nem.13
-hafa betri útskýringar á Plissit á glærum svo við getum rifjað upp seinna meir

Nem.14
-æfa samtöl
-meðferðarúrræði

Nem.15
-fleiri dæmi úr þinni meðferð og úrræði

Tengja við Facebook

Facebook   
 

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 29