Hvaða mektarmenn og máttarstólpa væri gaman að hirta?
31. Október 2008
Má til með að segja frá skemmtilegum tölvupósti sem mér barst í kvöld.
Hef verið í bókaskrifum um kynfræðina, eins og þið vitið, og þegar ég var að skrifa kaflann um fjölbreytileika kynhegðunar hafði ég samband við BDSM á Íslandi til að biðja þau um ritrýni við tækifæri.
Bauð þeim einnig að vera á lista hjá þeim sem "kinky friendly" þerapisti ef þau vildu. Frómt frá sagt var báðum erindum mínum afskaplega vel tekið.
Í kjölfarið var mér skellt á póstlistann þeirra og fæ núna samviskusamlega að vita af öllum "hittingum".
Þð er eitthvað svo skemmtilegt við að vera uppnefnd "sampervert" og fá flengikveðjur
Og hverja væri nú gaman að hirta? Látum oss nú sjá...?
----------
Kæru félagar, vandamenn og sampervertar
BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega því fjölmenni hefur verið mikið á undanförnum munchum með tilheyrandi stólaskorti.
Munchið verður að þessu sinni haldið á XXXXXX, þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.
Umræðuefni kvöldsins er "hvaða mektarmenn og máttarstólpa væri gaman að hirta" en að sjálfssögðu er líka hægt að ræða um BDSM, fetish, annan perraskap og þjóðlífið.
Endilega fjölmennum á XXXXXX borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.
Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.
Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi
Ástúðlegt ofbeldi - um villandi orðanotkun19. Október 2008 "Ástúðlegt ofbeldi". Finnst ykkur þessi tvö orð ekki vera mótsögn? Það finnst mér. Ofbeldi hefur ekkert með ástúð að gera heldur er ætíð árás á mennskuna og ætíð árás á bæði sál og líkama.
Mér finnst merkingarlaust að tala um að ofbeldi sé annað hvort kynferðislegt, líkamlegt eða andlegt. Það sem oft er sagt vera andlegt ofbeldi, þ.e.a.s. án þess að viðkomandi þolandi finni það beint á eigin líkama, er líka merkingarlaust. Ástæðan er sú að líðan hefur áhrif á lífeðlisfræðilega ferla (og þar með líkamann). Þegar við áttum okkur á því að líkami og sál/hugur er ein heild því fyrr áttum við okkur á því að það er bara til ein tegund ofbeldis og það er ofbeldi sem einn eða fleiri einstaklingar beita öðrum og einkennist m.a. af valdbeitingu, ójafnræði, virðingarleysi og afmennskun. Ofbeldi er niðurlæging mennskunnar. Ég vil taka fram að barátta gegn öllu ofbeldi, sama í hvaða farvegi ofbeldið á sér stað, er mikilvæg. Allir þeir sem helga líf sitt þeirri baráttu, s.s. baráttunni gegn ofbeldi á kynverund manna, er kjarkað og einstakt fólk. Ég er ekki að gera lítið úr þeirri vinnu. Ofbeldi, sama í hvaða farvegi það er, er OFBELDI og ég legg til að við veltum því fyrir okkur hvaða óleik við gerum kynverund mannsins með því að tala eins og ofbeldi geti verið "kynferðislegt". Það er ekki hægt, ekki frekar en að ofbeldi sé "ástúðlegt"!
Kynhegðun undir áhrifum áfengis-og vímuefna13. maí 2008 Kynverund fólks er ekki eyland. Með því á ég við að t.d. kynhegðun fólks gerist ekki í tómarúmi en í samspili Þáttakendur í úrtakinu voru fundnir voru á börum, pöbbum og næturklúbbum. Reyndar tóku ekki margir einstaklingar þátt í könnuninni eða samtals 1, 341 þegar litið er til þess að könnunin náði til níu landa; Austurríkis, Tékkóslóvakíu, Þýskalands, Grikklands, Ítalíu, Portúgals, Slóveníu, Spánar og Bretlands. Aldursdreifing þátttakenda sem voru á aldrinum 16-35 ára gefur til líka til kynna að ekki er eingöngu um ungt fólk að ræða. Þegar aldursdreifingin er svona mikil má búast við mjög fjölbreyttum lífsstíl meðal þátttakenda. Reynsluheimur 33 ára nýfráskilins karls er kannski annar en reynsluheimur 16 ára samkynhneigðrar stelpu, svo dæmi sé tekið. Hér á landi tölum við oftast um "ungt fólk" í könnunum þegar það er á aldursbilinu 16-25 ára. Það eru engin ný sannindi að óhófleg notkun áfengis-og vímuefna slævir dómgreind, líka í kynferðislegum samkiptum, til dæmis "gleymir" fólk frekar smokknum og sér meira eftir kynmökum sem það hafði undir áhrifum. Annars á ódrukkið fólk það líka til að "gleyma" smokknum í viðleitni sinni að mynda náin tengsl í kynmökum. Það er heldur engin ný frétt að sumir drekki í sig kjark þegar farið er út á lífið m.a. til að auðvelda sér að halda uppi samræðum. Noti áfengi sem "félagslegt sleipiefni". Í rannsókninni sögðust þriðjungur karla og 23% kvenna, á aldrinum 16-35 ára, drekka til að auka líkur á að ná sér í rekkjunaut. Það nýja sem kom fram í áðurnefndri könnun er að hluti fólks virðist af og til nota ýmis vímuefni beinlínis til að reyna að "bæta" upplifun sína af kynmökum; efla kynferðislega skynjun eða lengja samfarirnar s.s. með kókaíni, alsælu eða kannabis. "Bæta" er hér sett innan gæsalappa því notkun vímuefna í því skyni að efla kynlífsupplifun orkar tvímælis því kynlífið verður stundum verra, ekki betra, og einnig aukast líkur á áhættuhegðun í kynlífi s.s. aukin fjöldi rekkjunauta og minni líkur á smokkanotkun. Stóra spurningin er hins vegar hvers vegna fólk getur ekki náð saman til að stunda kynlíf án þess að vera undir áhrifum? Getur fólk ekki farið á fjörurnar við aðra allsgáð? Þykir það hallærislegt? Hefur fólk ekki bein í nefinu til að viðurkenna sig sem kynverur á meðan það er edrú? Finnst fólki það ekki eiga skilið að njóta kynferðislegrar ánægju? Niðurstöður áðurnefndrar rannsóknar má nota á ýmsa vegu. Og líka misnota. Þeir sem telja að kynlíf ungs fólks sé alltaf til vandræða gætu hér sótt byr undir sína vængi eða réttara sagt vandlætingartón. Það skilar hins vegar engu í að bæta kynheilbrigði að tuða og röfla um slæma hegðun eða mála skrattann á vegginn. Vonandi styrkja niðurstöður þessarar rannsóknar gerð raunhæfrar stefnumótunar meðal þeirra sem fara með kynheilbrigðismál. Að brýnt sé skoða betur tengsl kynhegðunar og áfengis-og vímuefna og stórefla kynfræðslu. Oftar en ekki er litið á kynhegðun sem afmarkað fyrirbæri en svo er ekki, kynverund fólks er ekki eyland, heldur ekki á Íslandi.
Léttur fyrirlestur um helgina
Um helgina hitti ég kvennahóp, suður með sjó, sem ætlar að gera sér glaðan dag, borða kynörvandi mat og spá í fullorðinsleikföng af bláa taginu. Ég var beðin að erindi um eitt og annað um kynverund kvenna, allt á léttu nótunum.
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 Næsta > Síðasta >>
Síða 26 af 29

Að sama skapi finnst mér hugtakið "kynferðislegt ofbeldi" vera mótsögn. Ég skil alveg að hér átt er við ofbeldi á kynverund mannsins - ofbeldi í kynferðislegum farvegi. Það er hægt að segja og leggja þar með áhersluna á ofbeldið sjálft, ekki það "kynferðislega".
við ótal aðra þætti. Áfengis-og vímuefnanotkun er einn þessara þátta. Nýverið birtu íslenskir fjölmiðlar fréttamola úr niðurstöðum rannsóknar meðal ungs fólks í níu löndum í Evrópu þar sem m.a. var skoðað á hvern hátt fólk á aldrinum 16-35 ára notar áfengi og vímuefni í tengslum við kynhegðun. Könnunin var gerð á vegum háskóla og lýðheilsustofnana í fjórum Evrópulöndum og